sykurpúðar og piprur... :P

a LiTle BiT oF sUgAr, a LiTle bIt oF SpiCe And ThaT´s aLl nIcE

08.11.2006 17:51:24 / Lína fína;)

Halló halló!!

Ég var að pæla ég hef nefla verið að kíkja á þessa síðu og það er ennþá fólk að kíkja hérna inná... Þetta voru nú líka good old times..! Er ekki áhugi fyrir að endurvekja Sugar and Spice??? Ég er til ef hinar vilja vera duglegar að blogga með mér???

Hvað segiði krútt??


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2005 16:24:16 / Ása

Gamlárs.....

Halló, halló...

hvað er málið í kvöld?


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.11.2005 12:49:40 / Sauðurinn

Sauður og stjarna

hádí

e-ð gott.. ég pikka í tölvur með puttunum.. einum í einu.. ég féll í vélritun, þannig að þessi texti tekur mig mjög langan tíma að skrifa... ég vélrita svo hægt að ég er yfirleitt búin að gleyma hvað ég var að skrifa þegar ég kemst loksins að næsta staf.. ég er sem sagt Auður..

Við fórum á Akureyri á laugardaginn að keppa við KA. Unnum með tveimur mörkum, það var gaman! ferðin byrjaði á rútuferð klukkan átta um morguninn með uppáhalds rútubílstjóranum okkar Lúðvíki!....Hann byrjaði á því að segja brandra þar sem enginn hló með honum...greyið! svo á leiðinni var hann alltaf að dotta aðeins fá sér smá blund...ekkert grafalvarlegt! Díana og Hilmar skiptust á vöktum til þess að vera tilbúin að kalla á hann til að vekja hann svo við færum ekki útaf eða fengjum bíl í okkur:) Þegar komið var á Akureyri lagði kallinn sig á meðan við vorum að keppa....þegar HK2 var búnar að keppa var svo ákveðið að panta pitsu á greifanum og borða hana í ka heimilinu áður en við legðum af stað...Fyrirliðinn hún Hjördís spurði hann Lúðvík hvort hann vildi vera með í pítsunni.. já hann var sko æstur í það en svo þegar kom að því að borga neitaði hann því og hélt því fram að bílstjórar fengu alltaf frítt að borða.. samt með sér matarpeninga.. riiigghtt.... herðu Hjödda endaði með því að þurfa að borga 8000 kall fyrir 4 pitsusneiðar.. jahh.. svei mér þá þetta voru dýrar sneiðar, kannski ekki alveg þess virði... en jæja svo Lúðvík lét sig hverfa í heilan klukkutíma með rútuna og þurftum við að bíða eftir honum og lögðum af stað því klukkutíma seinna en ætlað var..allir voða ánægðir með það eða hitt og.. Svvooo á leiðinni heim sofnaði hann bara alveg og munaði hálfum millimetra að við færum bara allar útaf, sem betur fer var Díana vel vakandi og öskraði á Lúðvík.. hann keyrði svo strax þvert yfir hringtorg.. já.. þá fórum við nú að fatta að beltin bjarga og flestir spenntu nú beltin.. eins og Áróra sagði orðrétt: "Ég vaknaði bara við þvílíkan skruðning og grjótkasti" held að það lýsi ástandinu alveg ágætlega..

Jæja Auður er farin í tíma svo ég þurfti að ljúka þessu fyrir hana..

Kærar kveðjur frá Auði og Örnu Sif...


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.10.2005 17:16:45 / Ása

uu... hæ

jæja hvernig væri að fara að setja eitthvað hérna inná???

p.s ég er búin að klukka ykkur allar :D:D

blog.central.is/dvergarnir_7 


» 96 hafa sagt sína skoðun

09.08.2005 20:52:17 / Lína fína;)

Síðan mín

Vist þið viljið ekki blogga fyrir mig þá blogga ég fyir ykkur;) Allt um lífið í Danmörku!

www.blog.central.is/elinanna


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.07.2005 16:36:06 / Ása

Verslunarmannahelgin....

Ég ætla nú að blogga þar sem ég er að vinna og allir aðrir einhverstaðar að tjútta...

Arna og Brynja eru í Eyjum, Eva var að fljúga til Englands, Auður er farin á Egilsstaði... veit ekki með Kollu... hmm... og síðan er hún Elín okkar búin að yfirgefa okkur og er flutt í Danaveldið.

Svíþjóð var hin áægtasta skemmtun þar sem við vinkonurnar versluðum svakalega og tókum miklum lit! En Brynja var samt innkaupmeistarinn... hehehe förum ekkert nánar út í það.

Við verðum nú að vera soldið duglegar að blogga fyrir hana Elínu okkar... svo hún viti hvað er í gangi...

En nú næstu vikurnar er bara vinna og síðan fer skólinn að byrja, það verður gaman að sjá nýja bekkinn (4.T)

Ég hef ekki hugmynd um hvað ég ætla að gera á eftir... engin heima... kíki kannski uppí bústað eða til mö og pa..... sé til.... En allavegna þá er alveg velkomið að tjá sig um hvað sem er!!!!!

kv. Ása


» 85 hafa sagt sína skoðun

29.06.2005 22:17:37 / Arna Stjarna

Hellú

Já ég var nú e-ð að vafra á netinu þar sem ég kom soldið snemma heim núna miðað við venjulega og tók þá eftir að þessi síða er eiginlega bara tjaa hvernig getur mar orðað þetta... e-ð eins og.. DAUÐ..
Er málið að hætta bara alveg með þessa síðu eða á að fara "kippa aðeins í sig" og standa sig betur við það að dúndra inn færslum... Það er nú bara alveg vonlaust að hafa e-a síðu sem rétt slefar upp í "eitt blogg á mánuði" síðu, glatað dæmi..
Ég held að engin skoði lengur þessa síðu, ekki einu sinni þeir sem skrifa inn á hana og þá er nú mikið sagt þar sem þar á meðal er Brynja sem stundaði blogg grimmt á sínum tíma... ´
Já.. þetta eru sorglegir dagar fyrir þennan hóp...

Eins og allir vita er Elín að fara yfirgefa okkur... Neeeeiii ekki deyja heldur er hún að fara to Danaveldis og gera það gott þar held ég, frábært fyrir hana að drífa sig í þessu og Elín það er gott að sjá þig á æfingar þessa daga þar sem maður hefur saknað þess að heyra ískrandi ílur skjótast upp annars lagið;) (gott að sjá að fótboltinn hefur líka ekki alveg soðið á þér heilann)

Svíþjóð eftir 4 daga, ég verð að viðurkenna það að ég hlakka soldið til:)

Brynja fékk mjög góðan deal áðan, vona bara hennar og okkar vegna að hún samþykki;)

Segi bæ núna og vona bara að öllum líði vel:)

Hej hej, hin svenska ArnaSif:) 


» 93 hafa sagt sína skoðun

19.06.2005 14:27:27 / Ása

Tjaldferð!!!!

loksins, loksins hef ég tekið þá ákvörðun að blogga hér fyrir ykkur!!!

Sumarið er byrjað og allt er í góðum fíling!! Við allar S&S náðum prófunum og höldum í 4.bekk (kolla bara á 3.önn...) næsta haust. Ég persónulega er að vinna fyrir Kópavogsbæ og er í Sólskinshópnum!! það er svaka stuð.. við erum duglegasti hópurinn!!!

Á fimmtudaginn síðastliðin skelltum við okkur allar plús valgerður og heiðrún sólskikn í tjaldferð... ferðinni var heitið i Þrastarlund en við enduðum á Borg í Grímsnesi.. það var hin ágætasta skemmtun!! Auður og Arna Sif voru dræverar... Þar var gítar og gaur að prumpa HAHA og .þrátt fyrir að við vorum 9 í 6 manna tjaldi gekk þetta bara helvíti vel.. daginn eftir drifum við okkur að ganga frá og fórum í bæinn beint í 17. júní dagskrá!

Eftir 2 vikur í dag er svo ferðinni heitið til Sverige á Partille cup!!! þar verður sko svaka stuð og miklum peningum eytt!!!!

en nóg um þetta.. ég á að vera að vinna þannig að ég kveð að sinni... bæbæ


» 88 hafa sagt sína skoðun

19.05.2005 22:34:51 / Lína fína;)

urrrr!!

Ísland komst ekki áfram!!!:klikk::klikk::evil::evil::frown::frown::cry::cry:

Hvernig verður eurovisionpartýið!!???


» 106 hafa sagt sína skoðun

16.05.2005 13:47:36 / Lína fína;)

sumarfrí?

Halló halló!!

Ég á reyndar að vera að læra undir þýsku próf og það alla helginna.. Því þýska er ekki mín sterkasta hlið! En hvernig á að vera hægt að sitja inni og læra fyrir próf eins og veðrið var í gær ég bara spyr?!?! Alla vega gat ég það ekki! Ich habe keine Ahnnung!

Alla vega þá á ég 3 próf eftir! Ég klára á föstudaginn 20 og þá hefst rosaleg helgi! Eurovion helgin.. Á föstudeginum er lokaball Verzlunarskóla Íslands, tjaldferð 3 bekkinga Lærðaskólans, sundlaugapartý MK og einkateiti;).......Á þessum stöðum munt þú geta fundið S&S gellurnar.

Á laugardaginn verður svo haldið rosalegasta Eurovisonpartý allra tíma!! Þar muntu geta fundið okkar allar saman komnar á einum stað á laugardagskvöldinu...!

Já best að hugsa ekki of mikið um þetta því maður þarf víst að klára prófin fyrst:$ Þannig að ég kveð í bili...

Dank für mich

Elín Anna.


» 97 hafa sagt sína skoðun

14.05.2005 16:17:49 / Ása

nú ætla ég sko að blogga!!

hæhæ, nú hef ég tekið þá ákvörðun að blogga :D ég er búin að vera svakalega upptekin í prófum!!! (ég á sugarandspice próf metið!! fer í 10) en þetta er allt saman að verða búið jibbiííí Ég er sko búin 19. maí í prófum þannig að það kvöld verð ég í góðu chilli með bekkjarvinum minum!! jibbííí....... Síðan 20. mai fer ég í ferðalag með 3.bekk! það verður stuð, gist í tjaldi, grillað og ekkert sofið :P daginn eftir það er síðan alvöru eurovision þar sem verður handboltapartý sem er bara gaman.!! Í gær fórum við Elín síðan á lokahóf HSÍ.. það var ekkert smá gaman, fyrst fór allur flokkurinn út að borða á Vegamót, síðan var haldið heim til Aldísar þar sem var spjallað og mikið hlegið. Við Elín héldum heim á leið uppúr 2... Hefði verið gaman að fá hinar landsliðsstelpurnar með en svona er þetta bara.... tjúttum bara saman á Eurovision. Lag dagsins er O.C lagið!! :D:D kv. Ásgerður

» 87 hafa sagt sína skoðun

12.05.2005 09:54:54 / Bongó

já ég er að blogga...

sorry tölvan er í rúglinu...

en já nú er ég uppí skóla að reyna að læra en það gengur misvel...

Já ég ætla að segja ykkur sögu... það var einu sinni lítil og sæt stelpa sem að var að klippa neglurnar sínar... hún fann engan stað svo hún skreið upp í rúmmið til litlu ljótu pöddunnar og byrjaði að klippa hún klippti og klippti þangað til litlli hobbitinn kom og skammaði litlu sætu stelpuna fyrir að lemja litla ljóta dýrið..

þegar litla ljóta dýrið hefði fattað þetta með neglurnar í rúmminu langaði hana í revenge svo hún tók eina dumle karamellu og tróð einni lítilli nögl inní hana... lokaði svo aftur... Svo var litla sæta stelpan að fá sér karamellu þá fóru alltí einu allir að hlæja af henni... og litla sæta stelpan hélt það væri eikkað í hárinu... en nei... svo var það bara nögl sem hún var að borða...:S:S þetta var nú ekki góð saga...

svo þið megið láta mig fá það sem ég heyri oft á dag.. (og það kemur skapinu í lag)

GÓÐ SAGA

kvaeðja BRYNJA MAGNÚSDÓTTIR


» 98 hafa sagt sína skoðun

11.05.2005 14:10:11 / Arna Stjarna

Wanted

Spurning fyrir salinn!

Hvar eru þessir meðlimir?

P.S. Þetta er ekki fyrsta heldur annað bloggið mitt í dag! Já!

Takk fyrir og góðan dag!


» 99 hafa sagt sína skoðun

01.05.2005 23:33:43 / Arna Stjarna

...

Já mar var fengin til að koma og eyða innleggi frá Vísi nokkrum í 3-T í versló.. sá gæji er nú furðufugl og ég mæli eindregið með að allir kíkji á hann í stofuna sína... Það er alveg ókeypis og allt og hver veit nema hann taki nú e-ð trix fyrir þig..
Áhugasamir hringið í Brynju eða mig..

Ekki var það meir í kvöld...

Bið bara að heilsa.. ofurArnaSif*:) 


» 94 hafa sagt sína skoðun

19.04.2005 23:22:46 / Sugar and Spice

Seinasti leikur vetrarins!!

Einn leikur!! Ein Bronzverlaun!! Leikur á morgun kl. 7 í Valsheimilinu!! Komd þú og sýndu stuðning!!

» 79 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10